Oddfellowreglan á Íslandi

Á öllu landinu eru starfræktar 23 bræðrastúkur og 5 Oddfellowbúðir. Í Vonastræti eru 11 bræðastúkur til húsa. Í Hafnafirði eru starfræktar 4 

Bræðrastúkur

Á öllu landinu eru starfræktar 23 bræðrastúkur og 5 Oddfellowbúðir.

Í Vonastræti eru 11 bræðastúkur til húsa. Í Hafnafirði eru starfræktar 4  bræðrastúkur.  Á Akureyri eru 2 stúkur.

Þá eru starfræktar stúkur í Reykjanesbæ, Selfossi, Ákranesi, Ísafiriði, Sauðárkrók og Vesmannaeyjum. Þá er væntanleg stúka á Egilsstöðum innan tíðar  

Stúkufundir

Fundir stúknanna eru ýmist vikulega eða hálfsmánaðarlega á tímabilinu september til maí. Stúkufundur er haldinn í stúkusal samkvæmt ákveðinni dagskrá og siðareglum. Að loknum fundi í stúkusal er oftast samverustund með erindi, umræður eða skemmtiatriði í setustofu.

Á hátíðafundum klæðast bræður kjólfötum og systur síðum, svörtum kjólum. Á venjulegum fundum klæðast bræður dökkum fötum og systur svörtum kjólum.

Nokkur leynd hvílir yfir starfsemi Reglunnar. Leyndin felst í því að reglu-systkini greina engum utan Reglunnar frá siðareglum.

Söngur og tónlist eru mikilvægir þættir á hverjum stúkufundi og það gildir einnig um aðra samfundi og skemmtanir á vegum stúknanna og Reglunnar.

Tilgangur slíkra samvista er ekki síst sá að félagar kynnist betur.

Heimsóknir milli stúkna eru fastur liður í starfinu. Einnig geta einstakir stúkufélagar farið sjálfir í heimsóknir til annarra stúkna bæði hérlendis og hvar sem er í heiminum þar sem Oddfellowreglan starfar.

Ekki er mætingaskylda á fundum, en hins vegar er nauðsynlegt að mæta vel til þess að njóta til fullnustu starfsins og þess siðfræðilega lærdóms sem Reglan boðar.

Félagatal Oddfellow
Ungmennastarf IOOF


  •  

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf