Oddfellowreglan á Íslandi

Stórstúka Íslands, I.O.O.F., var stofnuð 1. ágúst 1933 og heyrði í fyrstu undir dönsku Regluna. Hún varð óháð 31. janúar 1948. Stórstúkuþing sem er

Stórstúkan

Stórstúka Íslands, I.O.O.F., var stofnuð 1. ágúst 1933 og heyrði í fyrstu undir dönsku Regluna. Hún varð óháð 31. janúar 1948.
Stórstúkuþing sem er löggjafarþing Reglunnar skal halda annað hvert ár í síðari hluta maí. Næsta þing verður árið 2011.
Stórstúkuþing kýs sér stjórn sem skipuð er 6 embættismönnum. Æðsti stjórnandi er stórsír en auk hans sitja í stjórninni tveir varastórsírar, tveir stórritarar og stórféhirðir.
Stórstúkustjórn skipar níu embættismenn sér til aðstoðar svo sem við innsetningu embættismanna í stúkum og önnur hátíðleg tækifæri.
Stjórn Stórstúkunnar heldur reglulega fundi 2. og 4. hvern miðvikudag á tímabilinu september til maí, og einn fund í mánuði yfir sumarmánuðina.
Viðtalstími stórsírs og stórritara er eftir samkomulagi.
Félagatal Oddfellow
Ungmennastarf IOOF


  •  

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf