Fólkvangur friðlýstur í Urriðakotshrauni í Garðabæ

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra skrifaði í dag undir tillögu um friðlýsingu fólkvangs í Urriðakotshrauni í Garðabæ. Tillagan að friðlýsingunni kemur frá Garðabæ og landeigandanum, sem er Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowreglunnar. Þetta er í fyrsta skipti sem fólkvangur er friðlýstur í einkalandi.

Deiliskipulag svæðisins var samþykkt í júlí 2023 og er þetta jafnframt í fyrsta skipti sem unnið er að deiliskipulagi samhliða friðlýsingu. Deiliskipulagið tryggir sameiginlega sýn Garðabæjar, Umhverfisstofnunar og Styrktar- og líknarsjóðs um farsæla þróun og uppbyggingu á svæðinu.

Urriðakotshraun liggur á milli Vífilstaðahlíðar og Urriðavallar. Markmið stofnunar fólkvangsins er að festa Urriðakotshraun og nánasta umhverfi þess í Urriðvatnsdölum í sessi sem aðlaðandi útivistarsvæði, með öflugu stígakerfi og aðstöðu til golfiðkunar samhliða vernd einstakrar náttúru, menningarminja og landslags. Friðlýsingin og fyrirhuguð stækkun Urriðavallar er í samræmi við náttúruverndarlög, sem heimila friðlýsingu landsvæða til útivistar og almenningsnota sem fólkvang. Þekktasta dæmi þess er skíðasvæðið í fólkvanginum í Bláfjöllum.

Eitt höfuðmarkmið Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa er að vinna að aukinni lýðheilsu meðal landsmanna. Því fellur það vel að markmiðum landeiganda að afhenda endurgjaldslaust hundruð hektara lands í jaðri höfuðborgarsvæðisins til útivistar öllum almenningi. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowa leggur fram land til friðlýsingar. Sjóðurinn á hluta af landi Selgjár, sem var ásamt Búrfelli og Búrfellsgjá friðlýst sem náttúruvætti í júní 2020 og kom árið 2014 að friðlýsingu Vífilstaðahrauns og Maríuhella.

Hér er frétt Vísis um málið.