Stórstúkan

Stórstúka Íslands, I.O.O.F., var stofnuð 1. ágúst 1933 og heyrði í fyrstu undir dönsku Regluna. Hún varð óháð 31. janúar 1948.

Stórstúkuþing sem er löggjafarþing Reglunnar skal halda annað hvert ár í síðari hluta maí. Stórstúkuþing kýs sér stjórn sem skipuð er 6 embættismönnum.

Æðsti stjórnandi er stórsír en auk hans sitja í stjórninni tveir varastórsírar, tveir stórritarar og stórféhirðir. Stórstúkustjórn skipar níu embættismenn sér til aðstoðar svo sem við innsetningu embættismanna í stúkum og önnur hátíðleg tækifæri.

Stjórn Stórstúkunnar heldur reglulega fund  annan  hvern miðvikudag  kl. 11:00  á tímabilinu september til maí, og einn fund í mánuði yfir sumarmánuðina.

Viðtalstími stórsírs og stórritara er eftir samkomulagi.