Bridgemót Oddfellowa veturinn 2013/2014

Auk keppninnar um Oddfellowskálina  verður haldið eins kvölds hraðsveitamót mánudaginn 13. jan 2014.  Bæði framangreind mót  verða  haldin í húsakynnum Bridgesambands Íslands Síðumúla 37, 3 hæð.  Spilin hefjast  kl.19  öll spilakvöldin.

Þátttökurétt í ofangreindum mótum  hafa allir Oddfellowar, bæði bræður og systur.  Nóg er að annar spilarinn sé Oddfellowi. 
Spilaður verður tvímenningur samkvæmt Monrad kerfi  í keppninni um  Oddfellowskálina 2013-2014. Notuð verða stig frá þeim 5 kvöldum  af  6 sem par stendur sig best.

Þátttöku í mótunum verður hægt að skrá með því að hafa samband við Björn Guðbjörnsson í síma: 896 8368 eða á meili bjorngudb@simnet.is
Hámarksfjöldi para verður 32 (64 spilarar) og fá þeir, sem fyrstir skrá sig, fyrsta rétt til þátttöku.  Spilarar skulu greiða keppnisgjald kr. 1.000,- á spilara fyrir hvert spilakvöld.

Oddfellowar! 
Við vonumst eftir góðri þátttöku ykkar svo þetta geti orðið að árlegum þætti í starfsemi  Oddfellowa og hvetjum ykkur janframt til að skrá ykkur sem fyrst.

f.h.  Bridgenefndar Snorra goða nr. 16
Björn Guðbjörnsson