Oddfellowblaðið
30.04.2026
Fréttir
Oddfellowblaðið er komið út, fullt af fjölbreyttu efni á 72 síðum.
Meðal efnis í blaðinu er viðtal við Norðmanninn geðþekka, Morten Buan, sem lætur af embætti stórsírs Evrópu í sumar. Rætt er við hann um ungmennaskipti Oddfellow í Evrópu, tengslin við Ísland, áhugamálin og margt fleira. Fjallað er um stækkun Urriðavallar, sagt frá nokkrum hjónum sem eru samtímis yfir- og undirmeistarar í sínum stúkum, staðan tekin á framkvæmdum sem regludeildir á Akureyri hafa staðið í, viðtöl eru við nokkur reglusystkini, hugleiðingar og fróðleiksgreinar og frásagnir af ferðalögum og fjölbreyttu stúkustarfi um allt land.
Oddfellowblaðið (vor 2026) má nálgast hér.