Fréttir
Framkvæmdir við Líknardeild
15. febrúar, 2012Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er mikill kraftur í framkvæmdum við Líknardeildina í Kópavogi.
Reglusystkin fjölmenna um hverja helgi og skipta með sér verkum við undirbúining á endurnýjun húsnæðis
LESA MEIRA
Skemmtikvöld í þágu Líknardeildar LSH í Kópavogi
07. febrúar, 2012Seinni hluta liðins árs kviknaði sú hugmynd meðal bræðra í St. Nr. 20 Baldur IOOF að efna til samkomu í því skyni að leggja
góðu málefni lið
LESA MEIRA
Dagur Breiðfylkingunnar.
23. janúar, 2012Laugardagurinn 21. janúar 2012 er annar dagur í Þorra og samkvæmt almanakinu miður vetur. Þegar elnaði að degi rann upp einn fegursti dagur
þessa vetrar. Einni og hálfri stund fyrir birtingu var vaskur hópur manna komin að verkum í húsum Líknardeildarinnar og nú hálfu
fleiri en fyrri laugardag, eða um 60 manns. Vopnað sleggjum, kúbeinum, brotvélum og hverskyns öðrum tólum réðst sá harðsnúni
her sem hér var kominn til atlögu án tafar og sótti fram í breiðfylkingu. Nota verður tungutak Heljarslóðarorustu ef leita á
samlíkinga um framgöngu fylkingunnar.
LESA MEIRA
Leiftursókn við Líknardeild
18. janúar, 2012Á laugardagsmorgunn þann 14. janúar 2012, rétt fyrir kl. átta, dreif að húsum Líknardeildar í Kópavogi, utan
úr náttmyrkri og ausandi rigningu, fjöldi manna, þangað komnir til að hefja vinnu við undirbúning á breytingum og stækkun
Líknadeildarinnar. Skoða myndir
LESA MEIRA
Oddfellowreglan styrkir uppbyggingu líknardeildar í Kópavogi
09. janúar, 2012Oddfellowreglan á Íslandi hefur ákveðið að færa Landspítala að gjöf fyrirhugaðar framkvæmdir við líknardeildina í
Kópavogi. Viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð milli Oddfellowreglunnar á Íslandi og Landspítala 5. janúar 2012.
LESA MEIRA
Heimasíða Oddfellow - tölulegar staðreyndir 2011
05. janúar, 2012Það er óhætt að segja að heimasíða Oddfellowreglunnar hafi sannað gildi sitt. Með sívaxandi efni á bæði innri og ytri
síðu fer heimksóknum á síðuna stöðugt fjölgandi.
LESA MEIRA
Jóla- og áramótakveðja frá Stórstúkunni
20. desember, 2011Kæru Reglusystkin!
Áramót er sá tími sem við horfum gjarnan yfir atburði liðins árs, en horfum einnig fram á veginn, setjum okkur ný markmið og
höfum væntingar um hvað nýja árið ber í skauti sér.
Árið sem nú er senn á enda hefur verið okkar kæru Oddfellowreglu farsælt að mörgu leiti. Nýir félagar hafa bæst í
hópinn en aðrir fallið frá, það er lífsins gangur. Í ljóði Tómasar Guðmundssonar, Hótel Jörð segir:
LESA MEIRA
Oddfellowblaðið des. 2011
19. desember, 2011Oddfellowblaðið í desember 2011 er komið á innri síðuna í rafrænni flettingu. Í blaðinu er að vanda fjölbreytt efni,
viðtöl og frásagnir úr Reglustarfinu....
LESA MEIRA
Germanskir Oddfellowdagar í Berlín
05. desember, 2011Germanskir Oddfellowdagar verða haldnir í Berlín dagana 6. og 7. október 2012. Stjórn Stórstúku Þýskalands býður alla
Oddfellowa velkomna á hátíðina og hefur sent bréf þess efnis, ásamt upplýsingum um dagskrá, sem sjá má á innri
síðu.
LESA MEIRA
Minningarkort StLO
30. nóvember, 2011Minningarkort Styrktar- og Líknarsjóðs Oddfellowa er nú komið á heimasíðuna og er í valmynd hér til
vinstri.
Þeim sem vilja notfæra sér þessa þjónustu er bent á þennan möguleika og að fylla þarf út upplýsingaform sem berst
umsjónarmanni í tölvupósti.
LESA MEIRA